06 október 2006

Picture(1.jpg 

Siggi og Mikki syngja ljóð
sárum þrungnum harmi
enda rambar íslensk þjóð
á örvæntingar barmi.
Myndina sendi Uxi
Sent með Hexia.net

24 maí 2006

Málsverður 

Brauðið þáði þrösturinn
og það vel kunni að meta.
Barnaskólabekkurinn
bauð honum að eta.
Myndina sendi Uxi
Sent með Hexia.net

09 maí 2006

Long Island Railroad 

Eimreið þýtur, þreyttur snýtir lúa.
Heima í grýtu kraumar kjöt
og kona brýtur saman föt.
Myndina sendi Uxi
Sent með Hexia.net

03 maí 2006

Gyðingurinn gangandi 

Gyðinginn sá ég gangandi
með guði á Broadway sprangandi
og hárlokkana hangandi
í heitan beagle langandi.
Myndina sendi Uxi
Sent með Hexia.net

China Town 

Kom ég við í Kínabæ
og kíkti á vörur falar
þar sem mangið iðka æ
ótal götusalar.
Myndina sendi Uxi
Sent með Hexia.net

02 maí 2006

Long Island Expressway 

Hér er ekið skott við skott,
skollans tafir, ekki gott.
We'll drive safely, worry not,
on The World's Longest Parking Lot.
Myndina sendi Uxi
Sent með Hexia.net

26 apríl 2006

Ground Zero 

Þar sem hrundu turnar tveir
og týndu fjöri skatnar
verður sérhver maður meir
og músum dapur vatnar.
Myndina sendi Uxi
Sent með Hexia.net

Empire State Building 

Á Manhattan er margt að sjá,
mergð fólks þar ég augum leit,
og numinn varð mér næstum frá
í níunda himni á Empire State.
Myndina sendi Uxi
Sent með Hexia.net

25 apríl 2006

Penn Station 

Frómir standa um frelsi vörð
og farþega á Station Penn
og halda reglu hér á jörð
hermannlegir vígamenn.
Myndina sendi Uxi
Sent með Hexia.net

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Site Meter